Segir nauðsynlegt að endurskipuleggja stuðningslán Endurgreiðslutími stuðningslána til fyrirtækja sem veitt voru í faraldrinum er of skammur, segir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Endurgreiðslur stuðningslána eiga að hefjast á þessu ári og ljúka á 18 mánuðum.