Hvað veldur þunglyndi? Margar ástæður geta legið að baki þunglyndi. Stundum finnast engar augljósar, utanaðkomandi ástæður, þunglyndið er þá sagt koma innan frá, hugsanlega vegna erfða eða einhverra sjúkdóma. Þess ber að geta að þunglyndi er margslunginn sjúkdómur með mismunandi birtingarmyndir.