Hraustleikarnir Velkomin í Hraustleikana, þar sem þið keppið við ykkur sjálf í hreysti og heilbrigði! Hvað er hollur matur? Hversu lengi á maður að sofa? Hvað á maður að hreyfa sig mikið? Páll Steinar, sjúkraþjálfari, svarar þessum spurningum og mörgu öðru í Hraustleikunum, þáttaröð um heilsu og heilbrigt líferni.