Fornöld - Molar Fornöld er tímabil í mannkynssögunni sem nær frá upphafi sögulegs tíma, þ.e. frá þeim tíma sem til eru ritaðar heimildir um, og til miðalda. Tímabilið áður en sögulegur tími hófst kallast forsögulegur tími. Ritaðar heimildir komu ekki fram á sama tíma alls staðar og því lýkur forsögulegum tíma í raun ekki alls staðar samtímis.