Allt í kringum okkur er orka. Við heyrum talað um orkusparnað, lífsorku og starfsorku. En hvað er orka nákvæmlega? Í þessum þætti fjallar Hjalti um orku.
Duration : 4m Maturity Level : all
Sólin er uppspretta gífurlegrar orku. En hvernig nýtum við sólina til að fá orku? Hjalti segir okkur allt um málið í þessum þætti.
Á Íslandi eru stórar vatnsaflsvirkjanir sem sjá okkur fyrir endurnýjanlegri orku. Í þessum þætti segir Hjalti okkur frá því hvernig vatnsafl verður að rafmagni.
Duration : 3m Maturity Level : all
Hefur þú einhvern tímann verið á gangi utandyra í svo miklu roki að vindurinn hreinlega stöðvar þig í sporunum? Í þessum þætti segir Hjalti okkur allt um orkuna sem býr í vindinum.
Olía er óumhverfsivænn og óendurnýjanlegur orkugjafi sem á rætur sínar að rekja til jarðefnis sem varð til fyrir milljónum ára. Í þessum þætti fjallar Hjalti um olíuna og hvers vegna það er mikilvægt að ríki heims kappkosti að gera sig eins lítið háð olíu og hægt er.
Skilaboð frá Hjalta: „Ég er alltaf í stuði. Alltaf fullur af orku. Ég er nefnilega alveg mögnuð vera. Rafmögnuð. Og það er þú líkaI“ Hvað meinar Hjalti eiginlega með þessu? Horfðu á þáttinn til að komast að því.
Duration : 5m Maturity Level : all
Rafhlöður eru magnað fyrirbæri sem við komumst öll illa af án. En hvernig virka rafhlöður? Hjalti segir okkur allt um málið í þessum þætti.
Í kjarnorkuveri er unnin raforka úr gufu . En hvernig virkar kjarnorkuver? Í þessum þætti fer Hjalti yfir málið á kjarnyrtan hátt.
Samfélagið okkar er gríðarlega háð orku. Hugsaðu þér ef hún myndi nú bara klárast. Þá væri ekkert rafmagn, engir bílar, flugvélar, skip, ekki ragmagnsofnar, eldavélar eða símar. í þessum þættir heldur Hjalti áfram að fjalla um Orku.
Duration : 2m Maturity Level : all
Í fjölmiðlum er mikið talað um orkuskipti. En um hvað snúast orkuskiptin og af hverju eru þau mikilvæg? Í þessum þætti veltir Hjalti því fyrir sér hvort orkuskiptin skipti einhverju máli.