Bakæfingar Það eru 40 vöðvar í bakinu eða 20 pör svo það getur verið flókið að æfa þá alla og ná að einangra hvern vöðva til að ná hámarks árangri. Í þessum þætti ætlar Ólöf að fara yfir nokkrar æfingar og hvernig er best að beita líkamanum þegar þær eru teknar.