Kristín Bára - Jóga nidra Jóga nidra hentar öllum og er algjörlega áreynslulaus, útafliggjandi slökun og leidd hugleiðsla sem krefst engrar þekkingar eða reynslu. Jóga nidra er forn jógaástundun sem sameinar hugleiðslu og slökun og er stundum kallað jógískur svefn, en ólíkt svefni er um meðvitaða djúpslökun að ræða.