Bátasmíði Það þarf ekki endilega að kunna að sigla til að vera bátasmiður, segir bátasmiðurinn Óskar Björn, en áhuginn á siglingum og bátasmíði fer samt vel saman. Bátasmíði er fjölbreytt starf þar sem ýmis tæki og tól eru notuð. Smíðin tengir saman iðngreinar eins og rafvirkjun, vélvirkjun og stálsmíði.