Bakaraiðn Að vera bakari snýst ekki bara um að hræra deig í kökur og góðgæti. Þú þarft að kunna á ýmsar vélar og tæki, þekkja hráefnið sem þú vinnur með og kunna fjölbreyttar vinnsluaðferðir. Ásgeir James Guðjónsson, Aron Ingi Bergsson og Guðrún Erla Guðjónsdóttir segja okkur frá starfi sínu sem bakarar.