Stundin okkar - Gói, Gloría og vinir Hér má finna alla þætti Stundarinnar Okkar síðan Guðjón Davíð Karlsson, Gói – byrjaði að vinna í Stundarleikhúsinu. Efnið er fjölbreytt og skemmtilegt en má þar meðal annars nefna Bakvið tjöldin, þar sem fylgst er með hvernig þættirnir verða til auk Jólastundarinnar og Stundarskaupsins. Stórskemmtileg og vönduð útgáfa sem gleður alla aðdáendur Stundarinnar okkar.