Vesturfarar Egill Helgason ferðast á Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum og skoðar mannlíf, menningu og sögu. Á árunum 1875 til 1914 flutti hátt í fjórðungur íslensku þjóðarinnar til Vesturheims en í Kanada fengu Íslendingar sitt eigið svæði og kölluðu Nýja Ísland. Í Vesturförum er sagt fra þessum miklu þjóðflutningum, fólkinu sem fór og afkomendum þess, menningunni sem þeir tóku með sér að heiman og voru akveðnir að halda í.