Varnarliðið Heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um sögu Bandaríkjahers á Íslandi á árunum 1951-2006. Í þáttunum getur að líta mikið af myndefni sem ekki hefur sést áður og er meðal annars rætt við fyrrum hermenn og íslenska starfsmenn varnarliðsins, sem segja sögur af starfi sínu og samskiptum við herinn. Leikstjórn: Konráð Gylfason og Guðbergur Davíðsson.