Viltu læra að lesa? í þessari þáttaröð kennir Sigrún Þórarinsdóttir okkur, á sinn einstaka hátt, hvernig stafirnir líta út og hljóðin sem þeir eiga.
Maturity Level : all
Það er fátt skemmtilegra en að ná að leysa flókna stærðfræðijöfnu. Í þessum þáttum fer kennarinn Ragnheiður Magnúsdóttir yfir það, á mjög skemmtilegan hátt, hvernig við leysum jöfnur.
Hefur þú einhvern tíma horft á eld loga í eldstæði, fundið hitann og séð hvernig eldiviðurinn tekur breytingum? Hefur þú pælt í því hvað er að gerast þegar eldur logar, þegar viðurinn brennur, hverfur og skilur eftir sig ösku? Í þessari þáttaröð fer Björgvin Ívar með okkur um heima efnafræðinnar.
Í þessari þáttaröð fjallar Hjalti Halldórsson, kennari og rithöfundur, um sögur. Hvað er saga? Hvernig lýsum við sögum? Hvað er frásagnarstíll? Hvað er flétta? Hvað er umhverfi? Orð um sögur er frábær þáttaröð fyrir þá sem hafa áhuga á sögum og bókmenntum.
Í þessari þáttaröð kennir Sigurður Þórir Þorsteinsson okkur undirstöðuatriðin í kanttspyrnu. Hann fjallar um spyrnutækni, skalla, knattrak og fleiri atriði sem knattspyrnuiðkendur á öllum aldri geta æft til að ná betri árangri. Kemur næst! eru frábærir þættir fyrir þá sem vilja verða betri í fótbolta.
Allt í kringum okkur eru alls kyns lífverur, stórar og smáar. Jörðin okkar iðar af lífi. En hvernig lífverur eru þetta? Hvað einkennir þær? Hvernig eru þær ólíkar? Í þessari þáttaröð fer Gauti Eiríksson yfir flokkun lífvera.
Sjórinn í kringum Ísland iðar af lífi. Í þessari þáttaröð fjallar Dögg Lára Sigurgeirsdóttir, kennari, um lífið í sjónum við Ísland og mikilvægi þeirra verðmæta sem þar leynast.
Mannslíkaminn er magnað fyrirbæri. En hvernig virkar hann? Í þessari þáttaröð segir Elín Edda Sigurðardóttir okkur allt um undur mannslíkamans.
Landafræði getur kennt okkur margt um umhverfið sem við búum í og hjálpað okkur að skilja hvernig við höfum áhrif á umhverfið okkar. Í þessari þáttaröð fer Hjalti Halldórsson yfir landafræði á skemmtilegan hátt.
Hvað er víkingur og hvernig var lífið á víkingaöld? Í þessari þáttaröð fer Stefán Andri Gunnarsson með okkur í ferðalag um heim víkinganna.
Í þessari þáttaröð fer Hjalti Halldórsson, rithöfundur og kennari, yfir það hvernig við notum tungumálið í daglegu lífi.
Hvað er nýsköpun? Hvað er frumkvöðull? Hvernig fær maður hugmyndir? Hvernig þróar maður og mótar hugmyndir og umbreytir í söluvöru? Hvað er viðskiptaáætlun? Hvað er markhópur? Í þessari þáttaröð segir Svava Bjök Ólafsdóttir okkur allt um frumkvöðla og nýsköpun.
Í þessari þáttaröð fer Atla yfir ýmis atriði sem tengjast kynhneigð, kynvitund, kynleiðréttingum og réttindabaráttu hinsegin fólks.
Vissir þú að þú ert áhrifavaldur? Um leið og þú komst í heiminn hafðir þú áhrif á umhverfið þitt. Í þessari þáttaröð fer Hjalti Halldórsson yfir mismunandi hlutverk okkar í samfélaginu og hvernig fjölskyldan og samfélagið mótar okkur.
Mæðgurnar Ásdís og Júlía eru forvitnir föndrarar sem finnst gaman að syngja og skapa. Í þessari þáttaröð fylgjumst við með þeim baka, rækta, elda og skapa allt á milli himins og jarðar.
Lærum að skrifa eru tilvaldir þættir fyrir duglega krakka sem vilja læra að skrifa stafina. Í þessari þáttaröð kennir Sigrún Þórarinsdóttur okkur stafina frá A-Ö.
Áhugaverðir molar um stjörnufræði í samstarfi við Stjörnufræðivefinn.
Saga" er regnhlífarhugtak sem samanstendur af liðnum atburðum sem og minni, uppgötvun, söfnun, skipulagi, framsetningu og túlkun þessara atburða. Í þessari þáttaröð þá gerum við sögufrægum persónum skil í formi mola.
Allt í kringum okkur er orka, en hvað er orka og hvernig verður hún til? Í þessari þáttaröð fer Hjalti yfir allt sem tengist orku!
Lýðheilsa er samheiti yfir heilsuvernd og forvarnir. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks og byggist á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur meðal annars til félags-, umhverfis- og efnahagsmála.
Við skiljum sögu mannkyns í gegnum listina. Frá forsögulegum lýsingum á bisonum til samtímaabstrakts, hafa listamenn fjallað um tíma sinn og stað í sögunni og tjáð algildan sannleika í tugþúsundir ára.
Landfræði snýst um sambúð manns og náttúru, sem og ýmsar aðrar hliðar mannlegs samfélags. Náttúrulandfræði fæst við hina ytri ásýnd landsins; landmótun, jarðveg, gróður og veðurfar svo eitthvað sé nefnt.
Fólk stundar íþróttir af ýmsum ástæðum, til að sigra í keppni, til að ná besta árangri, til að halda sér í góðu líkamlegu og andlegu formi eða einfaldlega ánægjunnar vegna.
Hvernig virka vextir? hvað gera bankar við peningana mína? er hættulegt að taka lán? Í þessari seríu fer Aðalheiður yfir hvernig fjarmál virka í daglegu tali.